Inga Jóna Óskarsdóttir, stofnandi
Hefur leyfi til að kalla sig viðurkenndan bókara skv. lögum um bókhald nr. 145 /1994, og tók undirbúningsnám fyrir réttindaprófin í Háskólanum í Reykjavík 1999 og með Diplóma í Rekstrar- og viðskiptafræðum frá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Hefur lokið nokkrum áföngum í Viðskiptadeildum Háskólanna. Einnig hefur hún tekið fjölda námskeiða hjá EHÍ og OHR og á ráðstefnum á vegum fagfélaga. Inga Jóna hefur ætíð lagt ríka áherslu á endurmenntun og að kynna sér dómaniðurstöður, breytingar á lögum og reglugerðum er varða bókhald.
Hefur diplóma próf frá Háskólanum í Reykjavík – “Ábyrgð stjórnarmanna”, sem og diplóma í PMD stjórnendanámi í HR – (Programme for Management Development)
Er einn af stofnendum í Félagi viðurkenndra bókara og formaður frá 2005 – 2008 ásamt því að hafa setið þar í ótal nefndum og starfsárið 2019 situr hún aftur í stjórn þess.
Hefur setið í prófanefnd til viðurkenningar bókara frá 2006 til ársins 2018.
Hefur verið stjórnarmaður í fagfélaginu Félag bókhaldsstofa og setið í nokkrum nefndum þess, og stjórn sem og verið í embætti formanns í 3 ár. Er félagi í FVH – félagi viðskipta og hagfræðinga sem og FKA – félagi kvenna í atvinnurekstri.
Starfsreynsla Ingu Jónu kemur frá ýmsum tegundum fyrirtækja, s.s fasteignafélög, verslun, byggingarfyrirtæki, íþróttastarfssemi, félagastarfssemi, framleiðslufyrirtæki, viðgerðarfyrirtæki og sjálfseignarstofnun.
Kennsla :
Inga Jóna hefur verið í stundakennslu frá árinu 2003, kennt í tölvuskólum, haldið fyrirlestra hjá einkafyrirtækjum, félögum og stofnunum.
Ennfremur hefur Inga Jóna verið í stundakennslu innan háskólaumhverfisins og nú frá 2017 við Endurmenntun Háskóla Íslands.
Hefur starfað sem bókari, aðalbókari, skrifstofustjóri, fjármálastjóri, framkvæmdastjóri, verkefnastjóri, kennari, formaður, meðstjórnandi og gjaldkeri.
Ástrós Ósk Jóhannesdóttir
Hefur diplóma próf frá Háskólanum í Reykjavík – “Ábyrgð stjórnarmanna”, sem og diplóma í PMD stjórnendanámi í HR – (Programme for Management Development)
Diplóma í Rekstrar- og viðskiptafræðum frá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper.